Minnismerki lyrics

by

Bubbi Morthens



[Verse]
Í dalnum stynur moldin af þorsta
Blómin standa ein og köld
Fiðrildin öskra tryllt af losta
Á heiðinni biður þokan köld

[Verse]
Í myrkrinu heyrum við trumburnar kalla
Fagurkerar myrkursins biðja um hvit lik
Fölar verur á vetninu labba
Í djúpinu svamla heilög frik

[Verse]
Skógurinn ilmar af laufi og mosa
Grafreitur stórborgar, þar sem við fórum á mis
Hálfgrafin hús yfir minningum brosa
Minningar um stórborg með ys og þys

[Verse]
Úti í auðninni standa þau hálfgrafin í sandi
Þögull hryllingur með ryðguð hlið
Hér beisluðu þeir atómið og höfðu í haldi
Minnismerki um hinn stóra frið

[Verse]
Yfir fótspor mín blésu heitir vindar
Þar til ég gekk inn í dimman skóg
Hásir tónar menningarsynda
Í nóttina músikin dó
Í nóttina músikin dó
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net