Sumar konur lyrics
by Bubbi Morthens
Sumar konur hlæja eins og hafið
Í höndum þeirra ertu lítið peð
Aldrei skaltu svíkja þannig konu
Sál þína hún tekur og hverfur með
Þannig konu karlinn skaltu varast
Kallaðu á drottinn, það hjálpar ekki neitt
Það sefur enginn sálarlaus maður
Sársaukanum fær enginn breytt
Og í nótt
Munu bræður mínir gráta
Og í nótt
Munu bræður mínir gráta
Með hjörtun særð og blá
Að vakna sem sálarlaus maður
Líta til baka og vita inni í sér
Að konur sem hlæja eins og hafið
Í brjósti sínu geyma sorfin sker
Sumar konur hlæja eins og hafið
Í höndum þeirra ertu lítið peð
Aldrei skaltu svíkja þannig konu
Sál þína hún tekur og hverfur með