Síðasti dansinn lyrics
by Bubbi Morthens
Þennan síðasta dans vil ég svífa með þér
Eina svipstund við tónanna klið
Gleyma brimróti´ og nótt
Gleyma að bryggjuna við
Liggur bátur sem stefnt skal á mið
Láta yl þinn og bros tendra í æðum mér glóð
Til að orna við draumljúfri þrá
Þegar stillt er á sæ, þegar stjarnanna skin
Gulli stráir um byrðing og rá
Og er síðasti tónn þessa seiðmjúka lags
Hefur svifið frá titrandi streng
Með hans bergmál að fylgd
Og með bros þitt í sál
Niður bryggjuna hljóður ég geng
Marga svartnættis vakt þennan síðasta dans
Mun ég svífa með þér yfir dröfn
Gegnum svarrandi brim, heyra seiðmjúkan tón
Kalla sjómann í draumanna höfn