Breyttir Tímar lyrics
by Bubbi Morthens
[Verse]
Þar sem þú labbar niður Laugaveginn
Í leðurjakka með hakakross
Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri
Dreymandi augu, þitt töffarabros
[Verse]
Þú þykist vera hissa að ég skuli syngja
Um atómvopn, glæpina
Öll tjáning og túlkun um alvörumál
Að framtið sé tjóðruð í kjarnorkubál
[Chorus]
Þú vilt ekki vakna
Þú vilt vera í friði
Þú ert eins og útrunninn
Skiptimiði
Þú átt þína keðju, rakvélablað
Finnst sem þú hafir meikað það
Þú átt þína keðju, rakvélablað
Finnst sem þú hafir meikað það
[Verse]
Þó ég sé eins og hvert annað skitseyði í hópnum
Enginn stjórnmálagúrú með markmið eða völd
Ég á enga lausn, kannski kirkja á staðnum
Ég er aðeins bölsýnismaður á kjarnorkuöld
[Verse]
En meðan ég lifi, finn til með ödrum
Skal ég berjast gegn kúgun, eiturnöðrum
Þú getur falið þig í þínum leðurjakka
Haldið áfram að leika saklausan krakka