Frostrósir lyrics

by

Bubbi Morthens



Þú komst til að kveðja í gær
Þú kvaddir og allt varð svo hljótt
Á glugganum frostrósin grær
Ég gat ekkert sofið í nótt
Hvert andvarp frá einmanna sál
Hvert orð sem var myndað án hljóms
Nú greyndist sem gaddfreðið mál
Í gervi hins lífvana blóms

En stormurinn brýst inn í bæ
Með brimgný frá klettóttri strönd
En reiðum og rjúkandi sæ
Hann réttir oft ögrandi hönd
Því krýp ég og bæn mína bið
Þá bæn sem í hjartanu er skráð
Ó, þyrmdu honum, gefðu honum grið
Hver gæti mér orð þessi láð?
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net