Giftu þig 19 lyrics

by

Bubbi Morthens



[Texti fyrir "Giftu þig 19"]

[Vísa 1]
Dimmir dagar allir eins
Kalt loftið syfjaðan bítur
Að streðast á móti er ekki til neins
Þú verður að vinna, binda járnið maður
Þú hefur enga menntun til að ganga um gólf
Í jakkafötum brosa vera glaður
Þú þarft að þræla frá átta til tólf

[Viðlag]
Passaðu þig drengur, þú sekkur inn í munstrið
Íbúðarkaup eru fyrir veika menn
Vara þú þig drengur, þú sekkur inn í hulstrið
Flýttu þér að synda það er tími til þess enn

[Vísa 2]
Við járnið þú stendur lætur þig dreyma
Um staði sem þú hefur engin efni á
Eins og allir hinir þú verður samt að reyna
Að sleppa í gegnum þessi ár
Helgarnar þær fara í að leggja saman tölur
Mínusa og plúsa og vídeógláp
Stundum læturðu það eftir þér að fara út að djúsa
Vaknarðu síðan þunnur upp með tóman ísskáp
[Viðlag]
Passaðu þig drengur, þú sekkur inn í munstrið
Íbúðarkaup eru fyrir veika menn
Vara þú þig drengur, þú sekkur oní í hulstrið
Flýttu þér að synda það er tími til þess enn

[Vísa 3]
Hvert sinn sem þú vaknar, lítur út um gluggann
Blasir við svart tóm með stórhríð
Bölvandi þú grefur fésið oní koddann
Veist að þú munt tapa ef þú ferð ekki í stríð
Fyrr en varir er rómantíkin dáin
Brúðkaupsgjafir fánýtt drasl
Þú finnur að er ekki lengur sama þráin
Sem fær þig til að vakna upp og byrja þitt basl

[Viðlag]
Passaðu þig drengur, þú sekkur inn í munstrið
Íbúðarkaup eru fyrir veika menn
Vara þú þig drengur, þú sekkur oní í hulstrið
Flýttu þér að synda það er tími til þess enn
Vara þú þig drengur, þú sekkur oní í hulstrið
Flýttu þér að synda það er tími til þess enn
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net