Biðin lyrics

by

Bubbi Morthens



[Texti fyrir "Biðin"]

[Scatt]

[Vísa 1]
Þið sögðuð okkur að sitja og bíða
Þið mynduð ráða okkar málum bót
Við höfum beðið og enn erum að bíða
Þið hafið ekki gert hætishót

[Scatt]

[Vísa 2]
Stór voru orðin og ákveðin loforð
Er sögðuð okkar kjör ganga glæpi næst
Allt reyndust það lygar fæddar við skrifborð
Þið svikuð okkur er þið göluðuð sem hæst

[Scatt]

[Vísa 3]
En þar sem þið sitjið til borðs með því liði
Sem hefur það starf að arðræna oss
Þá skilst að þið eruð sá fjandans flokkur
Þið í umslögin laumið Júdasarkoss
[Scatt]

[Vísa 4]
Ég minnist þín Gvendur á fundi út í eyjum
Er sagðir þú við okkur farandverkarar
Leggið ekki baráttuna í hendur á þeim peyjum
Sem ekkert annað eru en stéttasvikarar

[Scatt]

[Vísa 5]
Samt ætlar þú sem sveikst fyrst af öllum
Þín byltingarrós hún fölnaði fljótt
Og loforðin urðu að steinrunnum tröllum
Um leið og þú af fundinum fórst

[Vísa 6]
Og þar sem þið sitjið til borðs með því liði
Sem hefur það starf að arðræna oss
Þá sést að þú gerjast í hinum stóra friði
Í umslagið laumar þú Júdasarkoss

[Scatt]
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net