Tíminn líður hægt í jóntubæ lyrics
by Bubbi Morthens
Ég ligg hérna flatur í svalanum
Og hlusta á götunnar klið
Úti eru þrjátíu stig og ég sný mér við
Tek af símann
Þú átt allan tímann vinur hér í Jóntubæ
Útvarpið spilar kántrílög
Nóttin kemur þæg og góð
Úti eru þrjátíu stig og í mér brennur glóð
Sem svíður nárann
Tíminn líður hægt hér í Jóntubæ
Allt sem þinn sjúka huga þyrstir í
Færðu fyrir réttan prís
Hér færðu konur sem bera í bálið þitt
Losta sem fuðrar eins og hrís
Tíminn er góður hérna í Jóntubæ