Aldrei aftur lyrics

by

Bubbi Morthens



Ég veit ekki hvað skeði, ég skil það varla sjálfur
Skelfingin í augum þínum segir allt sem þarf
Drakk ég kannski of mikið? Ég man ósköp lítið
Myrkrið er í blóðinu ég fékk það víst í arf

Aldrei aftur ég lofa því
Loforð, loforð blaut og ný
Aldrei aftur hlustaðu á
Hamingjan er meira en gul græn og blá

Börnin eru skuggar sem skilja ekki dýrið
Skelfingin hún sefur aldrei, vakir brjóstum í
Etur frá þeim svefninn, sýgur úr þeim þróttinn
Sársaukinn er húsvörður sem tekur aldrei frí

Hvernig má það vera ég standi í þeirri stöðu
Ég stjórna engu sjálfur og veit ekki neitt
Að kvöldi dags ég lofa að líf mitt skuli breytast
En loforð mín þau virðast ósköp litlu geta breytt
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net