Vandi er um að spá lyrics

by

Bubbi Morthens



Nú sitja þeir og drekka drauma úr glösum
Drengirnir með slifsin og kollvikin há
Á stalli sínum háum híma þeir fölir
Og horfa niður mannheima á

Hér komst ekki gleðin á
Elskulega systir
Við skulum dansa betur þegar birtir

Nætur langar reika með rauða hvarma
Raunaleg eru hljóðin sem hljóma þeim frá
Þeir seldu landið, logar gull í haugum
Lifandi dauðir friðinn sinn fá

Nú sitja þeir og drekka drauma úr glösum
Drengirnir með slifsin og kollvikin há
Holir eru að innan, enga hafa skugga
Aldrei í mannheimum dansað þeir fá

Aldrei í mannheimum dansað fá dauðir
Dagana björtu aðeins geta þráð
Hefnist þeim sjöfalt sem svíkja landið
Svitna þá í víti, hljóta enga náð
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net