Jesús Pétur Kiljan hin heilaga jómfrú og aumingja ég lyrics

by

Bubbi Morthens



Veistu hvað ég heyrði í dag?
Hamingjan er skrítið lag
Ekki er ég að þrasa
Enga á ég frasa
Jú kannski þennan
Þennan sem leyfir allt
Þegar hamingjuhjólið er valt
Tunglið, tunglið taktu mig
Taktu mig strax í dag
Þangað sem stjörnurnar fara
Þá skal ég syngja þér lag

Sumir syngja á íslensku - vá! æðislegt, flott
Ekki þykir mönnum það í útlöndum gott
Nei skrælingja mállýskur meika ekki sens
Maður sem syngur þannig eignast aldrei bens
Jesús, Pétur, Kiljan, hin heilagajómfrú
Hallgrímur Pétursson - hvað geri ég nú?

Veistu hvað ég heyrði í dag?
Ísland á sitt ömurlega lag
Ekki er ég að þrasa
Enga á ég frasa
Jú kannski þennan
Þennan sem leyfir allt
Þegar hamingjuhjólið er valt
Tunglið, tunglið taktu mig
Taktu mig strax í dag
Þangað sem hetjurnar fara
Þá skal ég syngja þér lag
Sumir syngja á íslensku…
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net