Ísaðar gellur lyrics
by Bubbi Morthens
[Texti fyrir "Ísaðar gellur"]
[Vísa 1]
Þær tína orminn úr íslenskum fiski
Ískaldar skilja ekki neitt
Þær búa á verbúð í felum milli fjalla
Þeim finnst þorpið ætti að heita ekki neitt
[Viðlag]
Norðurljósin lýsa upp myrkrið
Langar þig elskan ekki heim
Þær drekka vodka, vilja smá hlýju
Ísaðar gellur með harðan hrjúfan hreim
[Vísa 2]
Þær eiga drauma sem dansa um nætur
Drauma sem leita að heimahöfn
Og vandamál sem vakna á hvurjum morgni
Vandamál með óteljandi nöfn
[Viðlag]
Norðurljósin lýsa upp myrkrið
Langar þig elskan ekki heim
Þær drepa tímann, tala um glæstar vonir
Ísaðar gellur með harðan hrjúfan hreim
[Hljóðfærahlé]
[Viðlag]
Norðurljósin lýsa upp myrkrið
Langar þig elskan ekki heim
Þær drekka vodka og vilja smá hlýju
Ísaðar gellur með harðan hrjúfan hreim