Kossar Án Vara lyrics

by

Bubbi Morthens


Það snjóar hérna úti og garðurinn hann gránar
Garðastrætishúsin verða hlýleg að sjá
Og kertaljóssins skuggar skrítnum myndum varpa
Á veggina í stofunni sem ég stari á

Og myndirnar þær læðast, lúmskar inn í hugann
Leggjast bak við augun og hvísla því að mér
Að ástin sé augnablik sem brenni mannsins hjarta
Í brjósti mínu er eldurinn enn að leika sér

Og þau svífa í kvöld snjókornin
Sem kossar án vara
Og við sem vorum ástfangin
Aldrei náðum saman
Það lá alltaf í loftinu
Að ég mundi fara

Það snjóar hérna úti og enginn er á ferli
Allt er hjúpað rökkri og kertin eru dauð
Senn fer hann að birta og bílar vakna kaldir
En borgin sefur ennþá og gatan mín er auð
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net