Sló sló lyrics

by

Bubbi Morthens



[Texti fyrir "Sló sló"]

[Vísa 1]
Á þingi er hann sló sló
Og þénar plentí skæs
Á kvöldin étur ró, ró
Af vellíðan hann blæs
Hann þykir fríður maður
Er kosinn út á það
Enginn lýgur fallegri glaður
Loforðin standa í stað

[Viðlag]
Við lifum í landi þingmannanna
Þar sem fátækt er ekki til
Í skugga frá vængjum gammanna
Þorum við að vera til

[Vísa 2]
Fjölmiðlar þeir virðast elsk‘ann
Í sjónvarpi ber hann af
Mæður okkar elsk'ann
Hann hefur lært sitt fag
Ekur um á töff bíl
Fólkið fellir þann dóm
Að hann hafi glæsilegri prófíl
En þeir fríðustu í Róm
[Viðlag]
Við lifum í landi þingmannanna
Þar sem fátækt er ekki til
Í skugga frá vængjum gammanna
Þorum við að vera til

[Vísa 3]
Orð hans hitta múginn
Í laumi dáir forsetinn hann
Þó alþýðan sé inn að beini rúin
Er honum fyrirgefið, það er hann
Líklega er honum sama þó þú sveltir
Með skömmtunarseðilinn úti í búð
Hendir í þig beini þegar þú geltir
Þingmaðurinn býður upp á snúð

[Viðlag]
Við lifum í landi þingmannanna
Þar sem fátækt er ekki til
Í skugga frá vængjum gammanna
Þorum við að vera til
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net