Sex að morgni lyrics

by

Bubbi Morthens



[Texti fyrir "Sex að morgni"]

[Vísa 1]
Þegar snjórinn svæfir gluggann minn
Flýgur sál mín burt
Þangað sem eldurinn eltir skuggann sinn
Þar sem það illa er látið kjurrt
Við sjóndeildarhringinn þjappa sér saman
Ýlfrandi raddir í vindinum
Ríðandi kemur óttinn, hann þekkir vanann
Og ætíð hefur fylgt vindinum

[Viðlag]
Rimlarnir fyrir gluggunum
Halda burtu skugganum
Sem hvíslar: Hleyptu okkur inn
Við erum vindurinn

[Vísa 2]
Hér er gott, gott að vera
Hingað kemst enginn inn
Þó loftlaust tómið ég verði að bera
Þú skilur mig er það ekki vinur minn?

[Viðlag]
Rimlarnir fyrir gluggunum
Halda burtu skugganum
Sem hvíslar: Hleyptu okkur inn
Við erum vindurinn
[Endir]
Þegar snjórinn svæfir gluggann minn
Flýgur sál mín burt
Þangað sem eldurinn eltir skuggann sinn
Þar sem það illa er látið kjurrt
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net