Afkvæmi hugsana minna lyrics

by

Bubbi Morthens



Afkvæmi hugsana minna hlusta ekki lengur á mig
Halda fyrir mér vöku og vilja láta annast sig
Í höfði mínu liggja göng inn í gula salinn víða
Gönguferð á múrum hugans er svo lengi að líða
Svo ég ligg bara hér svefnvana og syng í hljóði lag
Og syndi gegnum næturmyrkrið inn í nýjan dag

Skuggar daganna minna í myrkrinu tala um þig
Og minnast á brotin loforð sem sviku fleiri en mig
Í hjarta mínu liggja göng grafin út af leiða
Fyrir göngumóðar hugsanir sem í nóttinni veiða
Minningar sem synda um í sjónum dökka rauða
Og svefnvana ég ráfa um húsið stóra auða

Á akri vitundar minnar sáðmaðurinn sefur rótt
Ég hef séð hann koma og fara nótt eftir nótt
Og nætursvefninn farinn er með friðinn mjúka, hvíta
Og ég finn í brjósti vökuna hjartað sundur slíta
Svo ég ligg bara hérna svefnvana og syng í hljóði lag
Og syndi gegnum næturmyrkrið inn í nýjan dag
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net