Sum börn lyrics

by

Bubbi Morthens



Sum börn eiga foreldra aðeins að nafninu til
Einhvers staðar í kerfinu segir maður Jú ég skil
Að ræna barni æskunni er aðeins fínna orð
Yfir það sem lögin túlka og skilgreina sem morð

Ekki benda á mig segir samviskan
Sæl og glöð í hvurjum manni sem frasan kann
Ekki benda á mig segir kerfið hátt
Krakkar eiga oft erfitt og hafa alltaf átt

Sum börn lifa á götunni og gatan elur þau
Gott er að eiga barnapíu sagði ráðherran og flaug
Til Útópíu að finna út í fögrum stórum sal
Hvort framtíðin sé bakhliðin á því sem koma skal

Sjálfsmorð hjá unglingum á Íslandi er há
Annað sæti í heiminum er skjalfest á skrá
Útgjöld til menntamála eru grafir sem geyma orð
Grikkir móta sömu stefnu en nota önnur orð
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net