Í nótt lyrics

by

Úlfur Úlfur


Skynsemin sefur og úrið mitt telur afturábak
Veröldin verður seint fegurri
Drykkurinn gleður mig
Og drykkurinn sefar mig
Sendi reykmerki til minna nánustu
Ég boða ykkur frið
Kem með kerti og pókerspil
Ég legg allt að veði: aleiguna, lífið mitt og dauðann, frumburðinn
Og sjálfan mig
Nóttin er ung eins og ég
Hún er tælandi eins og kvenkynið sem verðlaunar mig ef að ég
Haga mér ekki vel
Brenni 10.000 kall
Er ég staulast inn á Prikið, dusta rykið af minningum
Rifja upp eigið skírnarnafn
Gleypi haglabyssuskot
Fylli lungun, breiði út vænghafið og hef mig svo á loft

Farið þið fjandans til
Glaseygði flandrarinn
Í leit að hinni einu sönnu einnota ást
Ég sagði farið þið fjandans til
Og skilið kveðju frá mér
Undir fullu tungli fara skrímslin á stjá, vinur
Mig langar ekk'að sofa - ég vil bara lifa í draum
Og deyja síðan glottandi með opna buxnaklauf
Gemmér einn, gemmér tvo, gemmér allt sem að þú átt
Gemmér ástæðu til þess að ganga alltof fokking langt
Í nótt, í nótt, í nótt
Ég stíg minn dans, ég stíg minn dans
Tunglið er fullt
Tunglið er fullt

Yðar einlægur á ráfi eftir hálum veg
Gleraugun jafn skökk og hann sjálfur er
Miðbærinn er striginn og hann málar vel
Á morgun verður tilveran hel
Hugurinn er svarthol sem að gleypir allt
En ég lýsi upp blackoutið með stolnum kveikjara
Ég ranka við mér inn í endalausum speglasal
En fatta ekki hver þeirra er í raun ég

Ég er mennskur - ég er dýr
Ævi mín er ævintýr
Skipti um ham á nýju tungli, fer í spariskinn og skenki mér í glas
Úr æskubrunn
Í nýþvegnum nærfötum
Fer og geri dauðans dyraat og leik mér einungis með eld
Og vitsmunalíf mitt
Þamba blóð úr jesús krist
Elti drekann yfir hóla og hæðir, höfin sjö, um stjörnukerfið
Enda veraldar
Enda ferðalagið þar
Eins og vitur maður sagði
"þetta djamm djammar sig ekki sjálft"
Í nótt, í nótt, í nótt
Ég stíg minn dans, ég stíg minn dans
Tunglið er fullt
Tunglið er fullt
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net