Engar hendur lyrics

by

Úlfur Úlfur


[Verse 1: Helgi Sæmundur]
Eyrun suða
Hjartað springur
Heilinn gufa
Smápeningur
Klukkan þrjú
Þriðja gigg
Sex núll á Úlfinn baby illað sh*t
Sami staður annar tími
Dæmdur frá byrjun, kalvínismi beint til vítis
Engir sénsar gefnir
Allir vilja leika leikinn
En dragðu djúpt andann
Því hér eru allir illa þvegnir
Veiddu þinn eigin mat
Ég geymi minn á leynistað
Fjarri flestum meðal geimvera og heiðingja
Fyrst þegar ég keyrði í hlað
Þá boðaði ég breytingar
En rotin epli eru og verða óæt til eilífðar
Sigli úr iðrum jarðar
Kvikasilfurkeðja um hálsinn
Höfuðkúpur standa á súlum og hafgufann dregur bátinn
Ég stend í fullum herskrúða, krómaður fyrir stáli
Ég kveikti enga elda
En helli bensíni á bálið
Ég er hundrað prósent á því fokkers eiga ekkert á mig
Þú ert ekki búinn að fatta og þú munt aldrei fokking ná því
Eyrun suða
Hjartað springur
Úlfurinn syngur
Og étur pínu
Og leggst til hvílu
[Hook: Arnar Freyr og Helgi Sæmundur]
Ég kom sá og sigraði, gerði allt úr engu
Stari upp í himininn, þaðan koma sprengjur
Meika ekki ykkur en nenni þessu lengur
Girtu þig nú drengur
Girtu þig nú drengur
Sjáðu mamma engar hendur
Ég gerði þetta án þess að verða fyrir heilaskemmdum
Sjáðu mamma engar hendur
Ég gerði þetta án þess að verða fyrir heilaskemmdum

[Verse 2: Arnar Freyr]
Ég er með hjarta ljóns og heila úr mávi
Ég naga neglurnar og reiti hárið
Sucka MC's á chain um hálsinn
Er það sjálfsmorð ef ég dey úr hlátri
Ég sigli um höfin sjö á bleikum báti
420, blaze it, bjáni
Ég og vinir mínir erum miklir kallar
Þú og vinir þínir eru svikahrappar
Þegar Úlfur hefur þanið slitinn barka
Ég gæti setið hér og horft á rykið falla
Ég opna munninn
Tala skít
Stoppa stutt
Sami staður annað líf
Ég held um hausinn
Rak hann í
Tek mig tak
Latte lep og þamba lean
Þykkur skrápur
Krabbadýr
Hættulaus
Augun rauð og flaggið hvítt
Í hjarta mínu
Satan býr
Ég dýrka dramatík
Uppi á fjalli, harakiri
Ég kom ekki til að eiga vini
Við erum menn í erindum svo ekki vera fyrir
Ofurmenni síðan að ég datt ofan í skyrið
Geri það sem fæstir geta nokkurn tímann skilið
Nettur eins og 17 ára, rúntandi um á Civic
Skyndilega vilja muthaf*ckas vera vinir
Fokk að sitja í hring og rúnka næsta manni
Sem að rúnkar næsta manni
Ég vil bara rúnka mér í friði
Fokk að vera fyrirmyndir
Fíla mig betur með kyndil upp í kjaftinum
Með spekingum og letingjum
Sem liggja bara á bakinu
Við giggum eins og vindurinn
Og leggjum eld að þakinu
Ég bý í kjallara með ljónastyttur úti í garðinum
En ef þið vitið ekki að það er ljótt að stara, stara
Um hvað er þá fólk að fokking tala, tala
Gæti reyndar reynt í marga daga
Ef það er ekki mögulegt að vera meira sama
[Hook: Arnar Freyr og Helgi Sæmundur]
Ég kom sá og sigraði, gerði allt úr engu
Stari upp í himininn, þaðan koma sprengjur
Meika ekki ykkur en nenni þessu lengur
Girtu þig nú drengur
Girtu þig nú drengur
Sjáðu mamma engar hendur
Ég gerði þetta án þess að verða fyrir heilaskemmdum
Sjáðu mamma engar hendur
Ég gerði þetta án þess að verða fyrir heilaskemmdum
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net