Annað Líf lyrics

by

Úlfur Úlfur


[Verse 1: Helgi]
Ég er einn í öllum heiminum
Ég gleymdi mér aðeins í leiðindum
Heilinn er tómur og líkaminn visinn
Ég stend hérna aleinn á beinunum
Gefið mér tíma til að detta í það
Með ræflum og dræsum og hundum sem bíta
Og draugum og skrímslum og blönkum og ríkum
Sem anda bara til þess að drepa og ríða
UH
Moðafokka skenktu mér
Ég er úlfurinn, rauðhetta leiktu með
Gemmér eitthvað sem mun virkilega kveikja í mér
Gemmér eitthvað sem fær einhvern fokking heim með mér
Gemmér eitthvað annað líf
Gemmér eitthvað annað líf
Gemmér eitthvað annað líf
Gemmér eitthvað annað líf
Fokkit
Moðafokkas komu til að drekka
Ég ætla að fokking dansa í alla nótt og fokking drekka
Allir þekkja einhvern sem að allir vilja þekkja
Allir vilja slást en allir virðast vera að blekkja
Allir eru snillingar en allir eru fífl
Ég er mesta fíflið en samt er ég svo fínn
Klukkan tikkar hratt en hjartað tikkar hraðar
Ég drakk bara alltof hratt, ég tók of mikinn hraða
Þúveist hvað ég er að tala um þúveist ég er bara að ranta
Meina ekki neitt og ég veit að þér er sama
Rífðu úr mér hryggjarsúluna og eigðu hana
Skerðu af mér hausinn bro og taktu með þér heim
Því ég vil
Eitthvað annað líf
Gemmér eitthvað annað líf
Gemmér eitthvað annað líf
Gemmér eitthvað annað líf
[Hook]
Þamba drank, brennum allt
Fokkitt, ég er fukkt up
Whatup baby? whatum bruh?
Fokkitt, ég er fukkt up
Ritskoðað, lenda í slag
Fokkitt, ég er fukkt up
Inn á Priki, brotið glas
Allir eru fukkt up

[Verse 2: Arnar]
Ég er einn af milljörðum
En ég er einn í eigin heimi
Býð ykkur í teiti
Á kristalsheimili og fleygi steini
Meiri ást og meira' af eitri
Ómögulegt að segja nei við
Eyði ævi á einum degi
Heyri' ey það sem hater segir
Gleymi mér í glasinu
Lokuð augu, liggjandi á grasinu
Sjóræningjakortið er í vasanum
Og ég tengist ekki neinu eins og bastarður
Vil ég vera ég? eða vil ég vera fyrirmynd?
Ég er alveg prýðileg manneskja, minnir mig
Virði bæði á plánetuna undir mér og himininn
Og deili með þér weedi, ef að þú villt vera vinur minn
Ég er upp í skýjunum
Yjillandi með tíum og hýenum
Og þau mata mig með vínum og vínberjum
En ég veit ekki hvað er real eða ímyndum
Ég er vel mögulega trippin
Hver setti E í drykkinn?
Ég get ekki séð í myrki
En öll snerting er eins og silki
Ég hverf inn í móðuna
Geng bara hringi eins og jónurnar
Göturnar blautar og blóðugar
Djöfullinn barnaði nóttina
Ég er górilla
Mothaf*ckas tjillin með hrossagrímur
Ég ferðaðist til himnaríkis en stoppaði stutt
Úlfurinn fokkar sér upp
[Hook]
Þamba drank, brennum allt
Fokkitt, ég er fukkt up
Whatup baby? whatum bruh?
Fokkitt, ég er fukkt up
Ritskoðað, lenda í slag
Fokkitt, ég er fukkt up
Inn á Priki, brotið glas
Allir eru fukkt up
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net