Tarantúlur lyrics

by

Úlfur Úlfur


[Verse 1]
Úlfurinn rúllar með rómverskum gyðjum og stóískum homies
Eldist um helming og drekk fyrir tvo, líkt og óléttur róni
Allir á hlaupum en ég týni rósir á rólegu róli
Með kórónu og bóner og vakna hvern morgun í blóðugu bóli
Finnið mig liggjandi í snjó
Ég er svo fokking emo
Rita ólæsileg ljóð
Mín hinsta bón
Gefið mér ábót af kaffi og eina milljón
Dreymir um heimili, konu og barn
Einnig um eilífar nætur og svall
Greini ekki muninn á himinn og hel
Vil ég peninga og skart eða rennandi vatn?
Úlfur Úlfur, tarantúllur
Flýgur eins og skúmur og tala tungum
Ég og þú og fullt tungl, liggjum bara og kúrum
Vel bakaður og mjúkur, kanilsnúður
Ég myrði sucka mc og hater
Eldfimari en bensín, V-power
Þú átt ekki séns í þetta hér
Mér líður vel
Eigin herra, eigin frú
Úlfar víkka heilabú
Tvö tré, hengirúm
Nóg um mig, hvað segir þú?
[Hook]
Mig skortir ekki neitt
Ég fer mína eigin leið
Þarf ekki silfurskeið
Ég er á grænni grein

[Verse 2]
Lífið er endalaust
En lífið er stutt
Ég nýt þess á meðan ég get
Þangað til að ég gefst upp
Á toppi ég frýs
Á botni ég bráðna
Allir vilja fljóta með straumnum en drukkna í meðalmennskunni og grána
Gleymast og hverfa og þau stálpast, eyða svo ævi sinni í það að langa
Í eitthvað annað en það sem þau þráðu á meðan þau lærðu og píndu sig áfram
En ég ber mig vel
Ekkert að mér
Blankur í gær en í dag lifi vel
Því lífið er endalaust, lífið er kjaftæði
Lífið er draumur og lífið er martraðir
Eina sem dregur þig áfram að markmiði
Er harkan og viljinn til þess eins að standa þig
Standandi á sama um alla sem hata þig
Er stærsti kostur sem hægt er að hafa, því mannfólkið er
Kalt og það drepur og skríður í skel
Étur og skítur og sefur svo vel
Ríður og fjölgar sér, ríður og fer
Bítur og klórar til að bjarga sér
Fýrar í sh*tti og drekkur sig í hel
Tekur frá öðrum og gefur frá sér
Velur sér foringja og hlýðir því sem
Stærsta dýrið vill að sé gert
Og það er úlfur úlfur
[Hook]
Mig skortir ekki neitt
Ég fer mína eigin leið
Þarf ekki silfurskeið
Ég er á grænni grein
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net